Ríkisvæddir stjórnmálaflokkar
Í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 er enn gert ráð fyrir að hundruðum milljóna króna verði varið úr ríkissjóði til rekstrar stjórnmálaflokka. Rökin fyrir opinberri fjármögnun voru meðal annars að draga úr áhrifum fjársterkra einstaklinga og fyrirtækja, stuðla að jafnræði, gagnsæi og auknu trausti á stjórnmálastarfsemi.
Allt eru þetta gild sjónarmið en það er ekki þar með sagt að fyrirkomulagið hafi eingöngu jákvæð áhrif á lýðræðið eða eigi að vera undanþegið gagnrýni.
Ekki þarf að ná manni á þing
Samkvæmt gildandi lögum nægir stjórnmálaflokki að hljóta 2,5% atkvæða á landsvísu til að eiga rétt á árlegum rekstrarframlögum úr ríkissjóði, að öðrum skilyrðum uppfylltum. Ekki þarf að ná manni á þing.
Sósíalistaflokkur Íslands hefur þannig fengið veruleg ríkisframlög án þess að ná manni á þing. Þá kom í ljós árið 2025 að annmarkar höfðu verið á úthlutunum til Flokks fólksins vegna skorts á lögbundinni skráningu. Þetta sýnir að ekki nægir að setja reglur um opinbera fjármögnun. Það þarf einnig að tryggja að þeim sé fylgt eins og í tilviki Flokks fólksins.
Takmarkanir á framlögum einstaklinga
Á sama tíma og ríkisframlög til stjórnmálaflokka hafa tekið mið af verðlags- og launaþróun hefur hámarksframlag einstaklinga og fyrirtækja staðið óbreytt í 550 þúsund krónum frá árinu 2019. Kaupmáttur þeirrar fjárhæðar hefur því rýrnað verulega.
Þetta er athyglisverð þróun. Á meðan opinber fjármögnun flokkanna fær reglulega endurskoðun hefur svigrúm almennings til að styðja stjórnmálastarfsemi ekki fylgt sömu þróun. Að mínu mati hefur núverandi kerfi dregið úr hvata flokkanna til að leita fjárhagslegs stuðnings almennings. Þeir hafa það einfaldlega of gott.
Veiking grasrótarinnar
Í samfélagi þar sem sjálfboðaliðastarf á undir högg að sækja tel ég þetta sérstaklega varhugavert. Stjórnmálaflokkar eiga að vera samtök fólks sem deilir lífsskoðunum, hugsjónum og vilja til að hafa áhrif á samfélagið.
Þegar fjármögnun er að verulegu leyti tryggð úr ríkissjóði minnkar þörfin fyrir að virkja félagsmenn, afla stuðnings og byggja upp öfluga grasrót. Fjárhagslegt sjálfstæði gagnvart stórum styrktaraðilum getur þannig leitt til þess að flokkarnir verði sífellt háðari ríkinu.
Um leið geta stjórnmálaöfl fest sig í sessi án þess að byggja upp það öfluga félagsstarf sem áður var nauðsynlegt.
Þegar flokkarnir verða sjálfir háðir kerfinu vaknar sú spurning hversu líklegir þeir séu til að breyta því.
Engin leyndarhyggja
Endurskoðun ríkisframlaga má ekki fela í sér tilslakanir á gagnsæiskröfum. Það þarf að liggja skýrt fyrir hverjir fjármagna stjórnmálastarfsemi og með hvaða fjárhæðum. Það á ekki að vera feimnismál að styðja stjórnmálaflokk fjárhagslega, en almenningur á rétt á að vita hvaðan fjármagnið kemur.
Það er full ástæða til að spyrja hvort viðleitnin til að draga úr áhrifum einstakra styrktaraðila hafi í staðinn skapað nýja tegund fjárhagslegrar ósjálfstæðis.
Það er þversögn að stjórnmálaflokkar, sem eiga að veita ríkisvaldinu aðhald, séu sjálfir orðnir fjárhagslega háðir því að ríkið haldi þeim uppi.
Höfundur

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu nýjustu pistlana beint í æð


