Hvert fara peningarnir af umferðinni
Það er eitthvað bogið við samgöngukerfi þar sem ríkið innheimtir sífellt meira af ökutækjum, en á samt erfitt með að fjármagna nauðsynlegar vegaframkvæmdir. Samkvæmt greiningu Samtaka iðnaðarins stefnir í að ríkið innheimti 83,9 milljarða króna af ökutækjum, eldsneyti og akstri árið 2027, en verji aðeins 50 milljörðum til vegasamgangna. Mismunurinn er 33,9 milljarðar króna! Á sama tíma lækka heildarútgjöld til vegasamgangna um tæpa fjóra milljarða og kílómetragjaldið hækkar um tæp 16%. Hvernig getur gjaldheimtan aukist á meðan framlög dragast saman?
Gerum það sem reynst hefur vel
Tvöföldun Reykjanesbrautar hófst árið 2003 en lokakafla framkvæmdarinnar frá Fitjum að flugstöð er enn ólokið og er ekki á áætlun fyrir en eftir 2030. Nýtum betur samstarf ríkis og einkaaðila til að hraða arðbærum framkvæmdum, eins og gert var í vel heppnaðri einkaframkvæmd við Hvalfjarðargöng. Framkvæmdin var fjármögnuð með veggjöldum og skilað til ríkisins án áhvílandi skulda og lægri veggjöldum en gert var ráð fyrir í upphafi. Færeyingar nýttu sér reynslu okkar Íslendinga og hafa fjármagnað gagnagerð í Færeyjum samkvæmt Hvalfjarðargangnamódelinu. Höldum áfram á sömu braut og við hófum við gerð Hvalfjarðargangna. Það mun auka svigrúm til framkvæmda.
Kostnaðaraðhald verður að fylgja
Nýja innviðafélagið Göng og brú getur verið skref í þessa átt, en ríkisfyrirtæki eitt og sér tryggir ekki hagkvæmni. Til þarf samkeppni, þekkingu einkaaðila og skýrari sýn. Því vekur fyrirhuguð ráðgjöf um verkefnaumsjón og forhönnun, meðal annars vegna Sundabrautar og nýrra Hvalfjarðarganga spurningar. Samkvæmt innviðaráðherra eru þeir 20 milljarðar sem nefndir hafa verið hámark rammasamnings til allt að 20 ára, ekki fyrirfram ákveðin útgjöld. Mér finnst það engu að síður vel í lagt.
Hvaða þjónustu á að kaupa og hvernig verður komið í veg fyrir tvíverknað við Vegagerðina? Sérfræðiþekking er nauðsynleg en kostnaðaraðhald verður að fylgja, því markmiðið á að vera auknar samgöngubætur fyrir það fjármagn sem við höfum yfir að ráða.
Ekki rukka tvisvar fyrir sömu samgöngurnar
Við Vestmannaeyjingar þekkjum hvað það þýðir að greiða sérstaklega fyrir samgöngur, enda er Herjólfur okkar þjóðvegur. Gjaldtaka getur komið mjög misjafnlega niður á fólki eftir búsetu og ferðatíðni. Veggjöld geta flýtt framkvæmdum en mega ekki einfaldlega bætast ofan á mikla skattheimtu. Lækka á skatta til að gæta jafnræðis ásamt því að setja árlegt hámark gjaldtöku. Þegar ríkið áætlar að innheimta nærri 34 milljörðum meira af umferðinni en það ver til vegasamgangna er lausnin tæpast að rukka vegfarendur enn meira.
Endurskoða þarf forgangsröðunina, nýta einkaframtakið betur og tryggja að gjöld af umferð skili sér í betri samgöngum. Vandinn er ekki skortur á fjármagni, heldur hvernig við förum með það sem þegar er innheimt.
Höfundur

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu nýjustu pistlana beint í æð


