Höfundur:
Gísli Stefánsson
Viðfangsefni:

Hvað er réttlæti?

Íþróttamaður sem nær hæsta árangri í sinni grein gerir það ekki á hæfileikunum einum saman, heldur liggja að baki þrotlaus vinna, miklar fórnir og ótal stundir þar sem hann leggur inn í bankann innistæður í formi endurtekninga, aga og þrotlausrar einbeitingar að settu markmiði. Þegar sigurinn kemur fögnum við og dáumst að eljunni sem skilaði honum á verðlaunapallinn.

Má ég vera minnar gæfu smiður?

Svo er það einstaklinginn sem fær hugmynd, tekur áhættu og stofnar fyrirtæki. Hann þarf reyndar ekki aðeins að glíma við hindranir sem fylgja því að koma hugmyndinni í framkvæmd heldur einnig veggi sem hið opinbera hefur reist og eitt getur veitt honum leyfi til að brjóta niður.

Hann þekkir ekki endilega það sem við hin köllum níu til fimm, því ef hann grípur ekki tækifærin þegar þau gefast falla þau milli skips og bryggju og ef hann klárar ekki verkefnið í dag bíður það hans á morgun.

Þeir sem ná að uppskera hagnast gjarnan og sumir ríkulega, en ólíkt því sem gerist hjá íþróttamanninum eru ekki allir áhorfendur tilbúnir að fagna árangrinum. Hjá sumum virðist fremur vakna löngun til að refsa þeim sem nær árangri, því það hlýtur jú að vera eitthvað grunsamlegt við að hagnast.

Réttlæti ríkisins sigrar

Þeir sem krefjast réttlætis vegna hagnaðar annara telja ekki nóg að þeir greiði meira í sameiginlega sjóðinn í krónum talið, heldur þurfi þeir einnig að greiða hærra hlutfall. Sömu hugsun má sjá þegar launþeginn sem vinnur sig upp í hærri laun og tekur meiri ábyrgð fær að launum hærra skattþrep. Það er kallað réttlæti.

Nýjasta dæmið er hinn vanhugsaði Bláskógarskattur, þar sem ríkisstjórnin hyggst bæði hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11% í 24% og innheimta sérstakt náttúru- og innviðagjald af við Geysi, Gullfoss og Þingvelli, meðal annars til að ná hinu fræga núlli í ríkisfjármálunum.

Þannig á að sækja milljarða í ríkissjóð til ferðaþjónustu sem byggst hefur upp fyrir tilstilli einstaklinga sem lögðu eigið fé og framtíð undir, en baðlónin virka jafnframt eins og seglar á ferðamenn og styrkja gistingu, veitingarekstur og aðra staðbundna þjónustu.

Forsendan virðist vera sú að hægt sé að hækka gjöldin án þess að breyta um leið þeirri verðmætasköpun sem tekjurnar byggjast á. Ríkisstjórnin talar um réttlæti í skattlagningu afþreyingar, en ferðamenn koma ekki til að fara í bíó heldur til að upplifa náttúru landsins.

Skiptir þá engu hvort verkefnin haldi áfram að skila arði, hvort ferðamönnum fækki eða hvort næsti frumkvöðull hætti við að fjárfesta. Réttlætinu skal náð.

Meira af réttlæti ríkisins

Það er heldur ekkert nýtt að núverandi ríkisstjórn leiti réttlætis með aukinni skattheimtu, því það er líka réttlátt að hækka veiðigjöld, en þá virðist minna skipta hvort hækkunin veiki fjárfestingar, samkeppnishæfni og atvinnuuppbyggingu í sjávarbyggðum.

Ég tel að skattahækkanir muni til lengri tíma skila ríkissjóði minni tekjum en óbreytt fyrirkomulag hefði gert, því skatttekjur verða ekki til með því einu að hækka prósentur heldur með þeirri verðmætasköpun sem skattarnir leggjast á.

Ríkið tekur sinn hluta hagnaðarins þegar vel gengur, en þegar fjárfestingin mistekst eða reksturinn skilar tapi situr sá sem tók áhættuna sjálfur uppi með afleiðingarnar.

Er það nema von að maður spyrji sig um merkingu orðsins réttlæti?

 

Höfundur

Gísli Stefánsson

Skráðu þig á póstlistann

og fáðu nýjustu pistlana beint í æð