Höfundur:
Gísli Stefánsson
Viðfangsefni:

Hvað varð um trúna á Ísland?

Umræðan á Íslandi hefur á undanförnu orðið æ fórnarlambsvæddari í ákveðnum hópum. Vextir, verðbólga og matarkarfan er há því krónan er léleg og það er erfitt að kaupa húsnæði því vextirnir eru svo háir, fjármögnun erfið og markaðurinn er lítill. Við getum þetta ekki sjálf og þess vegna verðum við verðum að ganga í Evrópusambandið.

Okkar spil eru betri en Evrópusambandsins

Ísland er ekki land án tækifæra. Þvert á móti höfum við á hendi einhver bestu spil sem nokkur Evrópuþjóð hefur. Við eigum gríðarlegar endurnýjanlegar orkuauðlindir, verðmæt fiskimið, víðfeðmt hafsvæði, öflugan sjávarútveg, einstæðan landbúnað, sívaxandi hugverkaiðnað og náttúrufegurð sem er draumur hverrar ferðaþjónustu. Við höfum aðgang að innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn og erum þannig nátengd Evrópu án þess að vera aðilar að ESB. Við erum því ekki einangruð eyja sem þarf á hjálp að halda heldur trú á eigið ágæti.

Ekki fullkomið frekar en í öðrum löndum

Auðvitað eigum við við vandamál að glíma eins og kom fram í inngangi þessarar greinar. Verðbólga, háir vextir, húsnæðisskortur og mikill kostnaður eru raunveruleg verkefni. Þau eru þó ekki sönnun þess að Ísland hafi brugðist og þau munu ekki hverfa við það að ganga í ESB.

Evrópuríkin glíma líka við atvinnuleysi, skuldir, húsnæðisvanda, orkukostnað og veikleika í samkeppnishæfni. Það þýðir ekki að ESB valdi þeim vandamálum alveg eins og krónan veldur ekki öllum okkar vandamálum.

Stundum er einfaldlega þægilegra að kenna kerfinu um en að spyrja erfiðari spurninga

Hefur ríkið eytt of miklu? Eru skattar kannski of íþyngjandi? Höfum við byggt í samræmi við þarfir markaðarins eða of lítið? Höfum við gert fyrirtækjum of erfitt fyrir? Höfum við nýtt orkuna okkar nægilega vel? Höfum við tekið réttar ákvarðanir?

Um leið og við tökum ábyrgð sjálf getum við lagað stöðuna. Sjálfstæði þýðir ekki einangrun því Ísland getur verið opið, evrópskt og alþjóðlegt samfélag án þess að ganga í Evrópusambandið.

Sjálfstraust þjóðar sem veit hvað hún á

Í stað þess að spyrja sífellt hvernig Evrópusambandið geti bjargað Íslandi ættum við frekar að spyrja hvernig getur Ísland nýtt betur þau einstöku tækifæri sem það hefur?

Ísland er ekki vandamálið held vantrú ákveðina hópa sem og sitjandi stjórnvalda á getu okkar til að leysa úr vandanum. Samtalið sem stjórnvöld eiga að eiga við fólkið í landinu á ekki að vera um samningaviðræður við ESB heldur um verðmætasköpun hér á Íslandi, sem er forsenda velferðar í landinu og verður um ókomna tíð sama hvort við göngum í ESB eða ekki.

 

Höfundur

Gísli Stefánsson

Skráðu þig á póstlistann

og fáðu nýjustu pistlana beint í æð