Fimm milljarðar af tæplega 1.700?
Ríkisstjórnin kynnti í gær fjárlagafrumvarp fyrir 2027 og stefnir að um fimm milljarða afgangi. Sá afgangur var reyndar kynntur sem núll af fjármálaráðherra og forsætisráðherra þegar sú síðarnefnda staðfesti þetta með því að tússa á töflu. Það er þó vissulega betra en áframhaldandi hallarekstur en þegar verðbólga er þrálát, vextir 8% og skuldir ríkissjóðs yfir 2.000 milljörðum þarf meira til.
Seðlabankinn á bremsunni
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í ágúst vegna verðbólgu og of hárra verðbólguvæntinga. Bankinn benti jafnframt á að hækkun opinberra gjalda hefði átt þátt í aukinni verðbólgu og nú ætlar ríkisstjórnin að bæta við. Það gengur illa að ætla heimilum og fyrirtækjum að draga saman á meðan ríkið sjálft hækkar gjöld sem fara beint út í verðlagið.
Fimm milljarðar breyta litlu
Það er jákvætt að stöðva hallareksturinn, en fimm milljarða afgangur hjá ríkissjóði af þessari stærð er lítið svigrúm. Skuldirnar hverfa ekki og vaxtakostnaðurinn heldur áfram að taka fjármuni sem annars gætu farið í heilbrigðisþjónustu, samgöngur og aðra grunnþjónustu. Markmiðið þarf að vera raunverulegur afgangur og niðurgreiðsla skulda.
Aðhald – en líka nýjar álögur
Í frumvarpinu eru boðaðar um 44 milljarða aðhaldsaðgerðir en á móti er reiknað með rúmlega 22 milljörðum í auknar skatt- og gjaldatekjur. Þær eru eftirfarandi:
Skatta- og gjaldahækkanir / nýjar tekjur: alls 22,6 ma.kr.
- Hækkun bankaskatts: 6 ma.kr.
- Ný gjaldtaka í ferðaþjónustu, m.a. við náttúruperlur ríkisins: 5 ma.kr.
- Hækkun kílómetragjalds: 4 ma.kr.
- Baðlón færð í almennt virðisaukaskattsþrep: 4 ma.kr.
- Lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis: 3,6 ma.kr.
- Auk þess eiga ýmsir skattar og gjöld almennt að hækka um 5,2%, og kílómetragjaldið sérstaklega um 15,9%.
Hagræðing og aðhald: alls um 44 ma.kr.
- Almennt aðhald í ríkisrekstri: 4 ma.kr.
- Fækkun stöðugilda, um 200 störf/stöðugildi: 3 ma.kr.
- Sértækar útgjaldaaðgerðir: um 36 ma.kr.
- Þar að auki verða fjárfestingaheimildir vegna nýframkvæmda lækkaðar, þó fjármálaráðherra segi að það eigi ekki að tefja helstu stórframkvæmdir.
Sérstaka athygli og spurningar vekur þátturinn sem snýr að sértækum útgjaldaaðgerðum sem er áætlaður 36 milljarðar og er ekki sundurliðaður sérstaklega. Ekki er tekið fram í tilkynningu stjórnvalda hverjar þessar aðgerðir og upplýsingar annars staðar um hvað fellur þarna undir eru ekki auðfinnanlegar.
Ríkið þarf að byrja á sjálfu sér
Þarna liggur pólitíska valið. Það er auðveldara að finna nýjan tekjustofn en að leggja niður gamalt útgjaldaverkefni. Ég tel að ríkið eigi að byrja á eigin rekstri, fækka verkefnum eða fresta enn frekar og gera meiri kröfu um framleiðni áður en leitað er enn frekar í vasa almennings og fyrirtækja.
Gjöldin lenda misjafnlega
Kílómetragjald er gott dæmi. Þar sem vegalengdir eru langar og almenningssamgöngur takmarkaðar er bíllinn ekki munaður heldur nauðsyn eins og þeir sem búa á landsbyggðunum þekkja. Sama gildir um fyrirtæki sem þurfa að flytja fólk og vörur langar leiðir og neyðast til að velta auknum kostnaði inn í verðlagið. Áhrif nýrra gjalda verða því ekki þau sömu alls staðar á landinu.
Aðhald er forgangsröðun
Aðhald þýðir ekki að skera jafnt niður alls staðar. Ríkið þarf að standa vörð um heilbrigðisþjónustu, samgöngur, löggæslu og aðra grunnþjónustu, en einmitt þess vegna þarf að spyrja hvaða önnur verkefni ríkið þarf raunverulega að sinna og hverjum má hætta.
Fimm milljarðar af tæplega 1.700
Fimm milljarða afgangur er skref í rétta átt en þó enginn sigur. Ef við ætlum að ná niður verðbólgu og vöxtum, greiða niður skuldir og skapa svigrúm til framtíðar þarf ríkissjóður að skila raunverulegum afgangi sem nýtist til að greiða niður skuldir og skapa þannig svigrúm til framtíðar. Það á að vera hægt þegar heildartekjur ríkissjóðs eru um 1.700 milljarðar.
Höfundur

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu nýjustu pistlana beint í æð


