„Velkomin“ um borð í vélina
Árið 1975 kom út platan Wish You Were Here með Pink Floyd. Þar er að finna lagið Welcome to the Machine, sem fjallar um hvernig stór kerfi geta tekið yfir sköpun og frelsi einstaklingsins. Þegar slíkt gerist fara reglur, skrifræði og fjárhagslegir hvatar að móta rammann – og svigrúm þeirra sem starfa innan kerfisins verður minna. Þessi myndlíking á stundum vel við þegar horft er til Evrópusambandsins. Reglur sem passa illa við eyþjóð Evrópusambandið byggir á sameiginlegu regluverki sem á að gilda fyrir öll aðildarríki. Vandinn er sá að aðstæður landanna eru mjög ólíkar. Eitt skýrasta dæmið sem rætt hefur


